Eftirprent af málverki
Hraunflæði - Tvenna
Hraunflæði - Tvenna
Couldn't load pickup availability
Þú sparar 20% með því að kaupa þessa tvennu, sem samanstendur af tveimur A5 eftirprentum af eldgosinu í Fagradalsfjalli.
Hraunflæði
Þessi tvenna sýnir hvernig hraunið óx og dreifði sér um allt landslagið.
Þessi tvenna inniheldur x2 eftirprent:
- x1 Eldfjall - Dagur 67 | 02.06.2021 eftirprent í stærð A5
- x1 Eldfjall - Dagur 91 | 04.07.2021 eftirprent í stærð A5
Bæði eftirprentin eru í takmörkuðu upplagi af 20 númeruðum eintökum hver, prentuð á hágæða 350g Magno Satin pappír og árituð og númeruð af listakonunni.
Prentað á Íslandi og kemur með upprunavottorði.
Myndin er í stærð A5 (210x148mm) er ekki innrömmuð
LISTAKONA: Amy Alice Riches
TITILL 1: Eldfjall - Dagur 67 | 02.06.2021
TITILL 2: Eldfjall - Dagur 91 | 04.07.2021
STÆRÐ: A5 (210x148mm)
UPPLAG: Takmarkað upplag í 20 númeruðum eintökum
EFNIVIÐUR: Prentað á hágæða 350g Magno Satin pappír
UMBÚÐIR: Kemur í plastvasa með kartoni til stuðnings og fóðruðu umslagi
Allar myndir og ljósmyndir © Amy Alice Riches. Allur réttur áskilinn.
UM SERÍUNA
Þetta er ‘dagur 67’ og 'dagur 91' í 100 mynda seríunni. Verkefnið byrjaði 20. mars 2021, daginn eftir að eldgosið í Fagradalsfjalli hófst. Amy varð svo hrifin af eldgosinu að hún ákvað að mála eitt málverk á dag af eldgosinu á meðan á því stæði, eða a.m.k. í 100 daga, ef það myndi standa lengur. Fyrstu 50 málverkin eru máluð samhliða eldgosinu og spanna fyrstu 50 dagana frá 20. mars - 8. maí. Á þeim tímapunkti var lítil tilbreyting á gosinu, það var svipað flesta daga. Þannig að næstu 50 viðfangsefni voru valin eftir áhugaverðustu dögum gossins. Amy fór tvisvar upp á gosstöðvar til að mála á staðnum, en annars voru málverkin máluð í gegnum vefmyndavélar RÚV og MBL.
*VINSAMLEGAST ATHUGIÐ*
-Litir geta verið öðruvísi á tölvuskjá/síma en myndverkið í raun.
-Erlendar pantanir gætu þurft að borga VSK, toll, skatta eða önnur gjöld. Kaupendur bera sjálfir ábyrgð á slíkum kostnaði sem gæti átt við. Hinsvegar ber að taka fram að mörg lönd gefa afslátt af slíkum gjöldum þegar kemur að málverkum og eftirprentunum.
-Allur höfundaréttur á myndverkinu tilheyrir Amy Alice Riches og er hann ekki seldur með málverkinu/eftirprentinu.




