Málverk
Gluggafoss
Gluggafoss
Couldn't load pickup availability
Olíumálverk.
20 x 30cm | 7.8 x 11.8 in. Olía á viðarplötu
Málverkinu fylgir upprunavottorð.
*Þetta málverk kemur án ramma*
LISTAKONA: Amy Alice Riches
TITILL: Gluggafoss
STÆRÐ: 20 x 30cm | 7.8 x 11.8 in.
EFNIVIÐUR: Olía á viðarplötu
UMBÚÐIR OG PÓSTSENDING: Verkið er vandlega pakkað inn í bóluplast og pappa og sent sem rekjanlegur pakki til kaupanda.
Allar myndir og ljósmyndir © Amy Alice Riches. Allur réttur áskilinn.
UM SERÍUNA
Ég ELSKA þennan foss - ég elska hvernig kraftmikið vatnið hverfur inn á milli dökkra klettana. Í þetta skiptið heimsótti ég fossinn í týpísku íslensku veðri, með þungbúnum skýjum en við það naut fossinn sín bara enn meira í landslaginu. Ég gerði lítil plein air málverk á staðnum, eða litaskissur eins og ég kalla það oft, og nýtti þær til að fullgera málverkið heima á vinnustofunni.
Þessi foss heitir Gluggafoss, og er staðsettur í Fljótshlíðinni. Kraftmikið vatnið hefur búið til göng í gegnum móbergið í gegnum aldirnar, sem býr til þessa litlu glugga þar sem sjá má fossinn falla niður í gilið!
*VINSAMLEGAST ATHUGIÐ*
-Litir geta verið öðruvísi á tölvuskjá/síma en myndverkið í raun.
-Erlendar pantanir gætu þurft að borga VSK, toll, skatta eða önnur gjöld. Kaupendur bera sjálfir ábyrgð á slíkum kostnaði sem gæti átt við. Hinsvegar ber að taka fram að mörg lönd gefa afslátt af slíkum gjöldum þegar kemur að málverkum og eftirprentunum.
-Allur höfundaréttur á myndverkinu tilheyrir Amy Alice Riches og er hann ekki seldur með málverkinu/eftirprentinu.
